Kristín Björg
22.05.2008 17:20:50 / kristin

123.is/gosh

Helló.. ég ætla að færa mig yfir á 123.is..  Ætla allavega að próf kerfið í 30 daga..  Svo sé ég bara til hvort ég haldi áfram eða ekki hér..  Skiptir ekki máli þótt ég sé ein með síðuna eða ekki, er hvort eð er búin að vera nánast ein með hana í meira en ár!;)  En já kíkið á:

 123.is/gosh

-Kristín Björg-


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 16:02:32 / Anny

Hætt !!

Halló Anný hér...Vildi bara láta ykkur vita að ég er hætt með síðuna .. Nenni ekki að standa í einhverju blogg bulli og svona kjaftæði ... Takk fyrir mig
Anný


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 15:21:49 / kristin

Sumarfrí:)

Hæ kjútípæ..

Jæja þá er skólinn alveg búinn núna, það var einkunnaafhending og prófsýni í gær.  Við skulum bara segja að mér hafi ekki gengið nógu vel og ekkert ræða það meira haha..  En já núna er ég loksins byrjuð að vinna 2-2-3 vaktir, byrja þá klukkan 4 á virkum dögum og klukkan 2 á laugardögum og sunnudögum..  Finnst best að vinna svona á kvöldin, maður græðir líka mest á því;) haha.. 

Annars hef ég nú ekki mikið að segja..  forkeppnin í Eurovision er á morgun og Regína og Friðrik að syngja This is my life..  Við hljótum að komast áfram, þetta lag er flott!  Svo styttist í sjómannahelgina:D  Hlakka til, elska þessa helgi.. Verð líklegast eitthvað með björgunarsveitinni, það er bara stuð:D  Love it!:D

Haha ég fór að ná í fullnaðarskírteinið mitt í gær og nú þarf ég ekki nýtt skírteini fyrr en 2060 haha.. Jú ég kannski skipti um mynd svona í millitíðinni:þ  En jæja þetta er komið gott..

-Kristín Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 16:06:07 / Anny

Vííí Anný að blogga :D

Jæja það er víst kominn tími á mig að blogga...Ætlaði að vera löngu búin að því en ég hef bara ekki nennt því, ég er svo busy kona;)
En allavega þá er ég búin í prófum, kláraði það á þriðjudaginn :D ýkt ánægð með það .. En seinustu helgi þá var ég ein heima því mamma og pabbi og Hjörtur voru uppí sumarbústað og ég og Hólmar fórum þangað á laugardaginn og borðum og svona skemmtileg heit:D Svo í dag var ég að byrja í nýrri vinnu:D Víðihlíð í ræstingum og það var bara gaman og ekkert smá fínt, miklu skemmtilegra og skárra en uppí Braut... En ég hef eilla ekkert að segja nema það að ég bíð ýkt spennt eftir að fá útúr prófunum sem verða 20 maí minnir mig og ég vona að mér hafi gengið þokkalega í þessum 6 prófum og nái einhverju af þessu heh... Það eru ekki nema 68 eða 69 dagar þangað til við förum út, ég, mamma, pabbi, Hjörtur og Hólmar erum að fara til Danmerkur og svo til Tyrklands verðum allt í allt í 3 vikur sem verður örugglega bara ýkt gaman:D En jæja ég ætla fara horfa á tv og hafa það kósý :D

AnnýMaría


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 00:42:34 / kristin

NÝJAR MYNDIR

Hæhæ..

Þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera þá ætla ég að eyða tímanum í að blogga smá!:)  Ég er nefnilega búin að vera heima hjá mér veik síðan á laugardaginn, ekkert svakalega gaman.  Með hita, einhvern skít í lungunum og enga matarlyst.  Þetta byrjaði með smá hitavellu og svo á sunnudaginn fór ég að hósta eins og bjáni og var svo að kafna næstu daga.  Frekar glatað svona þegar maður er í miðju prófi.  Ég fór sem sagt fár veik í próf á mánudaginn og þriðjudaginn.  Á mánudaginn var í ensku, gekk ekki vel og á þriðjudaginn var ég í spænsku, held mér hafi nú gengið alveg ágætlega þar.  En já á mánudaginn fékk ég  40°C hita og var orðin frekar slæm í lungunum svo við mamma skruppum til læknis á þriðjudaginn og ég er með bullandi bronkittis (veit ekki baun í bala hvernig það er skrifað) og læknirinn bannaði mér að fara í prófið í morgun, þannig að ég fer bara í sjúkrapróf í íslensku, ég er nottla bara heppin að vera ekki í prófi á morgun og föstudaginn því ég hefði ekki mátt fara í þau heldur.


Ohh svo núna næstu vikuna þarf ég að læra læra læra fyrir náttúrufræði og söguprófin sem eru á miðvikudaginn eftir viku, gangi mér vel, ég er nebbla ekki þekkt fyrir það að geta lært all day long haha.  En jæja þrjú búin og þrjú eftir, sumarfríið fer aaaalveg að koma:)  Eða sumarfrí, vinnan fer að byrja, ég byrja að vinna mína venjulegu sumartíma mánudaginn 19. Maí, þá byrjar ballið!  Og já svo styttist líka óðum í sjómannahelgina:D  Ég er sem betur fer í fríi þá:D  Boissinn minn var samt að bjóða mér auka vinnu þá..  Ég þakkaði bara pent fyrir og sagði nei haha!;)

En jæja ég var að setja inn myndir síðan fyrir körfuboltaballið..  Var víst eitthvað að ljúga Elku, ég hélt það hefðu bara verið teknar 2 myndir eða eitthvað..  Ég reyndar tók engar, og ath ég ætla að vara ykkur við, þetta er viðbjóðslegar myndir haha..  Þvílíkur horrbjóður!;)  En já þetta er hérna til hliðar í Myndasöfn í Aðalvalmyndinni;)

Læt þessa sætu mynd af litlu geimverunni minni fylgja með;)


-Kveðja Kristín kjúlli


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 21:24:21 / kristin

Anný að blogga?

Hola!

Já ég sé að Anný kom með huge blogg í gær, eða þannig..  alltaf jafn dugleg haha..  En allavega þá eru prófin byrjuð og ég fer í 6 próf.  Fór í stærðfræði í morgun, fer svo í ensku á mán, spænsku á þri, íslensku á mið og svo í náttúrufræði og sögu á miðvikudaginn eftir 12 daga rsum..  En já mér hefðu nú alveg getað gengið betur í prófinu í morgun, þetta verður mjög tæpt ef ég fell ekki bara..:(

Á miðvikudaginn var svo körfuboltaballið hérna í Grindavík.  Við hittumst 7 hérna heima hjá mér, Anný, Hólmar, Sunneva, Elka, Sólveig og Sigrún og nottla ég haha.  Aðeins drukkið og svo bara farið á ballið um 1 leitið, ég reyndar var ekki lengi, fór heim um 3 leitið, Anný og Hólmar líka því Anný var með æluna uppí hálsi, okkur Hólmari tókst loksins að fá hana til að fara heim hehe:þ

Í dag á svo pabbi afmæli, orðinn 38 ára gamall8|  til hamingju með það:þ:*
En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, held ég hafi nú bara ekkert meira að segja...

Kveðja Kristín Björg.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 13:27:01 / Anny

BloggBloggBlogg

Kem með blogg á morgun, lofa því:D

AnnýMaría

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 18:39:34 / kristin

Myndir..

HæHæ
Ég setti inn myndir:)  Reyndar ekkert glænýjar, þær eru síðan í október 2007 þegar ég var að passa fyrir mömmu og pabba í 8 daga þegar þau voru í Ítalíu.  Ég og Anný gátum brallað margt og mikið og þið getið séð það á myndunum þegar Anný klæðir sig í hinn fræga fimleikabúning:) OG ÞAÐ VERÐA ENGAR MYNDIR TEKNAR ÚTAF ANNÝ;)  Þetta vildir þú;)  En já..  Hérna til vinstri farð þið í Aðalvalmynd | Myndasöfn | Fimleikabúningur!
Enjoy
-Kristín Björg-



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 22:30:19 / kristin

Hmmmmmm?

Hæhó..

Enn og aftur er það ég, Kristín, sem blogga.  Bíðum enn eftir að Anný fái ragettu, eða eitthvað annað í rassgatið;)  og drullast til að blogga:)!

En annar þá hef ég nú ekki frá miklu að segja núna frekar en fyrri daginn.  Engin vinna þessa helgina, allavega ekki í Braut en ég var sem sagt með Björgunarsveitinni að rífa niður girðinguna og toga upp staurana á Grindavíkurveginum á laugardaginn, vorum mætt klukkan 08:00 og vorum til klukkan 20:00, tólf tímar takk fyrir!  Og já þá má segja að maður hafi verið þreytt eftir þetta.  En þetta var samt ekkert svo leiðinlegt, ef maður bara lendir með rétta fólkinu í hóp þá er talað um ýmislegt skemtilegt sem lætur timann gjörsalega fljúga áfram;) 

Ég lét þetta nú ekki stoppa mig og fór eftir mikið suð frá Lejoni í partý til hans í Kef..  Ég nebbla ætlaði ekki að fara því bíllinn minn er bilaður og ég nennit ekki að fara að redda fari..  Hann hringdði þá í Dóra og Aron og sagði þeim að fara í Rvk í Grindavík að ná í mig og koma svo í partý haha...  Ég trúði Lejoni ekki þegar hann sagði að þeir væru að koma svo ég fór bara að taka mér spólu og svona, svo þegar ég kem til baka þá birtist Aron heima hjá mér og þeir að sækja mig haha...  Ég var þá btw ógreidd, á náttfötunum og ómáluð haha....  Ég hentist í föt og tók svo snyrtidraslið með mér haha.. 

Þetta var bara fínasta partý, ég varð kannski aðeins of full, drakk nú ekkert rosa mikið en Lejon dró mig í einhvern drykkjuleik þannig að ég drakk aðeins of hratt og já var svo ælandi eins og bjáni þegar ég kom heim.. já og á leiðinni heim á grindavíkurveginum haha...  En já gaman að þessu..

Í dag er ég svo bara búin að eyða deginum í þynnku og svo var barnaafmæli hérna heima.  haha ég sem var að segja í gær að ég yrði sko aldrei þunn haha;)  HEY!  Ég má ekki gleyma, ég var að kaupa mér síma:D  ég nebbla missti hinn og hann brotanði á hroninu hjá skjánum(samlokusími) og svo gat ég notað hann í nokkra daga en svo bara hviss bamm búmm skjárinn dauður takk fyrir!  Þannig að ég fór og keypti mér Sony Ericsson S500i..  Gasalega flottur:)

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili, og hver veit, kannski bloggar Anný næst:)  Þú gæti nú kannski sagt frá því að þú hafir verið að þrífa bílinn;) haha

Kveðja Kristín sem verður aaaaldrei þunn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 16:37:19 / kristin

Gat í tunguna:)

Hola!

uss þetta gengur ekki lengur, verðum að fara að gera eitthvað í þessu Anný María Lárusdóttir!;)  En allavega ég og Anný létum verða að því að fá okkur gat í tunguna:D  Ekkert smá flott, fyrir náttúrulega utan bólguna sem er að hrjá mig núna haha, kann ekki að tala;)  En þetta kemur allt á endanu..

Er bara búin að vera að vinna um helgina og svona... Rúnta með Anný og Hólmari og svona..  Svo fer alveg að koma að prófunum, þannig að maður þarf kannski að fara að taka sig aðeins á ..hmm? haha..

Jaaá þið segið það..  Ég og Anný erum að spá í að fara í pottinn og svona næstu helgi, kannski drekka smá líka:)  Alltaf gaman, þangað til daginn eftir þegar maður verður þunnur hehe,, Sem reyndar gerist sjaldan hjá mér:D  en já ég nenni ekki meir..

Eða jú ég ætla að óska henni Hildi Ýr litlu systir til hamingju með daginn á morgun:*  Verður 7 ára skvís:)  Til hamingju dúllan mín:*

-Kristín Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 11:46:36 / kristin

Blablabla

Hæææ

Jææja mér finnst nú vera kominn tími á smá almeginlegt blogg hérna.  Þó svo að ég hafi nú ekki frá miklu að segja, voðalega lítið að gerast hjá mér þessa dagana..

Ég er í fríi þessa helgina, reyndar er þetta þriðja helgin mín sem ég er í fríi því seinustu helgi var systir mín að fermast og ég var að hjálpa til við að koma húsinu í stand fyrir veisluna (veislan var heima).  En já þetta var bara fínasti dagur og gaman að hitta alla ættingjana:)

Jáá ég má nú ekki gleyma því að ég og Anný skelltum okkur í Rvk á miðvikudaginn og ég keypti mér eitt stikki myndavél:D  Conon Ixus 75, engin smá græja:)  Þannig að nú verða sko teknar myndir af djamminu:)

Ég kíkti svo á doksa á fimmtudaginn því ég var með einhver útbrot í kjaftinum og þetta var víst sveppasýking..  Þannig að núna þegar þetta er farið þá er bara að fá sér gat í tunguna:)  Ef við Anný gugnum ekki;)

Í gærkvöldi fór ég svo á rúntinn með Anný, Hólmari og Arnóri á nýja kagganum, ýkt mjúkur og þæginlegur bíll:)

En jæja ég held ég láti þetta gott heita í bili..

Kveðja Kristín Björg.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 19:14:40 / kristin

Aprílgabb

Bara sma aprílgabb hérna niðri;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 21:31:24 / kristin

Hætt

HæHæ..

Jæja allir, ég hef ákveðið að hætta á síðunni í eitt skitpi fyrir öll!  Nenni ekki að standa í þessu lengur, komin með ógeð af að blogga og svona..  Þannig að við sjáumst bara í himnaríki eða eitthvað...

-Kristín Björg fyrrverandi Heimsk!


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 15:41:04 / kristin

Afmæli...

HæHæ...

Ætla nú bara að óska henni Sunnevu til hamingju með að vera loksins orðin stór.. eða fullorðin... verðu væntanlega aldrei stór... Hún var eitthvað að tala um afmælisblogg í gestabókina, svooo érna er það:)  En allavega til hamingju með 18 árin:)

Kv. Kristín


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 22:48:57 / kristin

27. mars! (Anný bloggar)

HæHæ:)

jæja í dag er 27. mars og þennan merkisdag fyrir 18 árum fæddist eitt lítið og dúllótt skrímsli og þann 13. maí 1990 fékk það nafnið Kristín Björg.



Ég kynntist henni í leikskóla og við höfum verið límdar saman síðan þá, sem er svosem allt í lagi en við brölluðum og saman og vorum ýkt miklir prakkarar og erum reyndar ennþá, eða sérstaklega hún:D  Við förum ennþá uppá kirkjuhólinnn og syngjum og förum líka alltaf út að labba með Baby Born dúkkurnar okkar haha, það er bara gaman... En við höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman og erum báðar frekjur og ýkt sætar stelpur:D Og ef við erum að rífast þá er Anný alltaf fyrst til að biðja hana að koma að gera eitthvað því hún er svo þrjósk!!  En ég óska henni bara innilega til hamingju með daginn og vona að hún eigi eftir að lifa önnur 18 ár í viðbót (vonandi ekki fleiri;)) djóók.. En ég samdi pínu afmælissömg fyrir hana til að syngja í dag..

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Kristín
Hún á afmæli í dag

Hún er 18 ára í dag
Hún er 18 ára í dag
Hún er 18 ára hún Kristín
Hún er 18 ára í dag!

En ég vil líka óska Villa bróður mínum inniæega til hamingju með afmælið í gær:D

En vá ég var að horfa a ýkt góða mynd áðan, August Rush heitir hún og ég get svarið það þetta er mynd sem allir verða að sjá!!  Ég held ég hafi aldrei grátið eins mikið yfir einni mynd og ég gerði áðan hehe..

En hérna fyrir neðan er ein ýkt flott auglýsing og ég mæli ýkt mikið með að allir skoði hana og spái í þessum bíl fyrir sig eða einhvern annan!  Þetta er ýkt flottur bíll og ég mæli eindregið með honum.

(Hólmar skrifaði auglýsinguna):

Ef  einhver hefur áhuga á að kaupa bíl á Góðu verði þá á ég hann til fyrir ÞIG

Erum að tala um passat 1.8 TURBÓÓÓÓÓ.....!!!! Ef áhugi er til staðar endilega hafið þá samband við mig (Hólmar) í síma :8238424 og þú getur fengið bílinn...

Hér eru nokkrar myndir af bílnum...ekkert sérstaklega góðar myndir en samt, þær sýna hvernig hann lýtur út.....
/>








Getið líka tékkað http://zpazzat.blogcentral.is

En allavega ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

Anný María!:)



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 57129
Könnun
Hvaða kyn ert þú?

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 2278 dögum
Byrjuðu heimskar